Ekkert kórónuveirusmit greindist innanlands í gær. Þetta kemur fram á Covid.is. 17 eru núna í einangrun sem er fækkun um átta frá því í gær. Níu eru á sjúkrahúsi rétt eins í gær.
Á landamærunum greindist einn með mótefni við veirunni.
Tekin voru 1.447 sýni, þar af voru einkennasýnatökur 1.188 talsins.
Aðeins 12 eru núna í einangrun á höfuðborgarsvæðinu, tveir á Suðurnesjum, tveir á Norðurlandi eystra og einn á Suðurlandi.
14 daga nýgengi innanlandssmita á hverja 100 þúsund íbúa er komið niður í 1,4, sem er lækkun um 0,2 frá því í gær. Á landamærunum er nýgengið 4,9 eins og í gær.
Alls eru 24 í sóttkví og 882 í skimunarsóttkví.
Búast má við tilslökunum innanlands fljótlega. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir skilaði tveimur minnisblöðum til heilbrigðisráðherra þess efnis í fyrradag.