Boða 81 árs og eldri í bólusetningu

Frá bólusetningu í Laugardalshöll.
Frá bólusetningu í Laugardalshöll. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þriðjudaginn 2. mars og miðvikdaginn 3. mars mun heilsugæslan bjóða öllum íbúum á höfuðborgarsvæðinu 81 árs og eldri, þ.e. fæddum 1939 eða fyrr, Covid-19-bólusetningu í Laugardalshöllinni.

Boð um bólusetninguna hafa verið send með SMS-skilaboðum og fólk er beðið um að fylgja tímasetningu sem þar kemur fram, að því er fram kemur á vef heilsugæslunnar.

Þeir sem eru á þessum aldri en hafa ekki fengið SMS-skilaboð geta komið í Laugardalshöllina, milli kl. 9:00 og 15:00 annan hvorn daginn, og fengið bólusetningu. 

Fyrirkomulag bólusetningar

Allir eru beðnir um að mæta með skilríki og við minnum á grímuskyldu.

Bólusett er í axlarvöðva og í almennu rými. Því er fólk beðið um að koma klætt þannig að auðvelt sé að ná í stungustaðinn. Gott er að vera í stuttermabol innst klæða. 

Allir þurfa að bíða í 15 mínútur eftir að bólusetning er gefin. 

Hafi fólk bráðaofnæmi við stungulyfjum, eða af óþekktum toga, er ekki ráðlegt að bólusetja það. Þeir sem ekki þiggja bólusetningu eru beðnir um að láta vita á bolusetning@heilsugaeslan.is eða i síma 513-5000.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert