Viðreisn kynnir framboðslista í NA-kjördæmi

Þau skipa efstu fjögur sæti listans: Sigríður Ólafsdóttir, Ingvar Þóroddsson, …
Þau skipa efstu fjögur sæti listans: Sigríður Ólafsdóttir, Ingvar Þóroddsson, Draumey Ósk Ómarsdóttir og Eiríkur Björn Björgvinsson. Ljósmynd/Aðsend

Viðreisn hefur kynnt framboðslista sinn í Norðausturkjördæmi fyrir þingkosningarnar sem fram fara 25. september. Áður hafði komið fram að Eiríkur Björn Björgvinsson, sviðsstjóri og fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri og á Fljótsdalshéraði, skipar fyrsta sæti listans.

Í öðru sæti er Sigríður Ólafsdóttir, mannauðsráðgjafi og PCC markþjálfi. Ingvar Þóroddsson, nemi í rafmagnsverkfræði og hagnýtri stærðfræði við Háskóla Íslands, skipar þriðja sæti listans og Draumey Ósk Ómarsdóttir, íslenskunemi við Háskóla Íslands, er í fjórða sæti.

„Ég hlakka virkilega til baráttunnar fram undan með þessum öfluga hópi. Við brennum öll fyrir kjördæmið, íbúa þess og málefni. Sjálfur hef ég búið og starfað í kjördæminu í þrjátíu ár og þar af verið bæjarstjóri í sextán ár, bæði á Norður- og Austurlandi,“ segir Eiríkur Björn í fréttatilkynningu.

Notast er við svokallaða fléttulista á framboðslistum Viðreisnar þar sem hver frambjóðandi má ekki vera af sama kyni og sá sem skipar sætið á undan.

Listi Viðreisnar í Norðausturkjördæmi:

1. Eiríkur Björn Björgvinsson, sviðsstjóri og fyrrv. bæjarstjóri á Akureyri og á Fljótsdalshéraði. Garðabær.
2. Sigríður Ólafsdóttir, mannauðsráðgjafi og PCC markþjálfi. Akureyri.
3. Ingvar Þóroddsson, nemi í rafmagnsverkfræði og hagnýtri stærðfræði við Háskóla Íslands. Akureyri.
4. Draumey Ósk Ómarsdóttir, íslenskunemi við Háskóla Íslands. Reyðarfjörður.
5. Jens Hilmarsson, lögreglumaður. Egilsstaðir.
6. Margrét Laxdal, framhaldsskólakennari. Dalvík.
7. Ingi Þór Ágústsson, hjúkrunarfræðingur og forstöðumaður Austurhlíðar. Akureyri.
8. Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, sölustjóri. Akureyri.
9. Kristján Gunnar Óskarsson, barnasálfræðingur. Húsavík.
10. Lilja Björnsdóttir, leigubílstjóri og sjúkraliðanemi. Egilsstaðir.
11. Erlingur Arason, félagsliði og tónlistarmaður. Akureyri.
12. Dušanka Kotaraš, matráður. Akureyri.
13. Steingrímur Karlsson, kvikmyndagerðarmaður og ferðaþjónustufrumkvöðull. Egilsstaðir.
14. Bryndís Arnardóttir, listgreinakennari og listamaður. Akureyri.
15. Sveinn Halldór Oddsson Zoega, tölvunarfræðingur. Neskaupstaður.
16. Auðbjörg Björnsdóttir, forstöðumaður Kennslumiðstöðvar HA. Akureyri.
17. Valtýr Hreiðarsson, viðskipta- og rekstrarhagfræðingur. Svalbarðseyri.
18. Gréta Sóley Arngrímsdóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur. Egilsstaðir.
19. Hólmar E. Svansson, framkvæmdastjóri HA. Akureyri.
20. Guðný Björg Hauksdóttir, mannauðsstjóri. Reyðarfjörður. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert