Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar í dag klukkan 11:00.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir fer yfir stöðu mála varðandi framgang Covid-19-faraldursins hér á landi ásamt Kamillu Sigríði Jósefsdóttur smitsjúkdómalækni sem mun fara yfir skipulag og framkvæmd bólusetningar á Íslandi. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn stýrir fundinum að venju.