Framboðslisti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í haust var samhljóða samþykktur á fundi kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í gærkvöldi, 10. maí.
Kosið var í þrjú efstu sætin á auknu kjördæmaþingi 27. mars síðastliðinn en uppstillingarnefnd sá um að stilla upp listanum frá fjórða sæti.
Þá er það Valgarður Lyngdal Jónsson, forseti bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar, sem leiðir listann. „Ég er þakklátur fyrir traustið sem félagar mínir í Norðvesturkjördæmi hafa sýnt mér. Ég er fullur bjartsýni, fús til verka og ég hlakka til samstarfsins við meðframbjóðendur mína og Samfylkingarfólk um allt kjördæmið,“ segir Valgarður.
Jónína Björg Magnúsdóttir skipar annað sætið og segir í fréttatilkynningu að hún sé mörgum kunn fyrir „íspinnalagið“ Sveiattan þar sem hún samdi textann við lagið „Mamma þarf að djamma“. Jónína hefur auk þess víðtæka reynslu úr íslensku atvinnulífi, hefur mikið starfað með fötluðum auk þess að starfa sem stuðningsfulltrúi og kennari, vitavörður, matráður, flokkstjóri og svo hefur hún aðstoðað í sauðburði í mörg ár á Hömrum í Haukadal. „Hjarta mitt brennur fyrir fólkið í landinu, reynslu þess og lífi hvort sem er í sorg og í gleði,“ segir Jónína.
Hér má sjá listann í heild sinni: