Tveir gróðureldar í Breiðholti

Sinubrunar hafa gert mönnum lífið leitt undanfarnar vikur. Hér gefur …
Sinubrunar hafa gert mönnum lífið leitt undanfarnar vikur. Hér gefur að líta ljósmynd sem var tekin 4. maí í Heiðmörk. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Klukkan 16.46 barst slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um tvo aðskilda gróðurelda í Breiðholti á milli Breiðholtsbrautar og Seljavegar.

Slökkviliðið hefur hafið aðgerðir á svæðinu og eru tveir dælubílar slökkviliðsins mættir á vettvang. Varðstjóri vonar að takist að ná tökum á eldunum fljótt.

Ekki er vitað nákvæmlega hver eldsupptökin eru en að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segja tveir aðskildir eldar ýmislegt. 

Búið er að slökkva eldana og tók það slökkviliðið rétt rúma klukkustund. 

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert