Íslendingur vann tæpar 40 milljónir í EuroJackpot

Eurojackpot.
Eurojackpot.

Í kvöld varð Íslendingur einn af sjö vinningshöfum sem deila með sér 2. vinningi í EuroJackpot og fær hver þeirra rúmlega 39,5 milljónir. Miðinn var keyptur í áskrift en hinir sex miðarnir voru keyptir í Svíþjóð, Finnlandi, Spáni og þrír í Þýskalandi.

Tveir voru með 2. vinning í Jóker og fá þeir 100 þúsund krónur í vinning hvor. Annar miðanna var keyptur í Iceland í Engihjalla og hinn miðinn var keyptur á lotto.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert