Fram að helgi er útlit fyrir hæga breytilega átt, skýjað að mestu og skúrir.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands.
Þar segir að auknar líkur séu á eldingum í skúraveðrinu og að hiti verði á bilinu 10 til 17 stig.
Um helgina lýkur skúraveðrinu og er útlit fyrir að lægðir nálgist landið á ný með úrkomu á köflum í flestum landshlutum, en úrkomuminna norðaustantil.
Veðurhorfur næstu daga samkvæmt spá Veðurstofu Íslands:
Á fimmtudag og föstudag:
Hæg austlæg eða breytileg átt og víða skúrir. Hiti 9 til 16 stig.
Á laugardag:
Breytileg átt 3-8 m/s og rigning með köflum, en úrkomulítið V-til. Hiti breytist lítið.
Á sunnudag:
Suðaustlæg átt og súld eða dálítil rigning, einkum austantil. Yfirleitt þurrt á vestanverðu landinu, en þykknar upp og fer að rigna seinnipartinn. Hiti 10 til 18 stig.
Á mánudag:
Suðaustanátt og rigning með köflum, en þurrt NA-lands. Áfram milt í veðri.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir austanátt, víða bjart með köflum, en dálítil væta sunnantil. Hiti breytist lítið.