Sjö sjúklingar liggja á landspítala vegna Covid-19 og eru þeir allir fullorðnir. Meðalaldur þeirra er 49 ár. Enginn er á gjörgæslu.
654 eru nú í eftirliti Covid-göngudeildar Landspítala en þar voru 51 fullorðinn nýskráður í gær og 19 börn. Taka skal fram að allir sem eru smitaðir á landinu, fyrir utan þá sem liggja á spítala, eru í eftirliti göngudeildarinnar, óháð því hvort veikindi þeirra séu væg eða alvarleg.