Forsetafrú fagnaði vígsluafmæli Bústaðakirkju

Frú Eliza Reid flutti ávarp.
Frú Eliza Reid flutti ávarp. mbl.is/Óttar

Aðventuhátíð og 50 ára vígsluafmæli Bústaðakirkju fór fram í dag.

Séra Eva Björk Valdimarsdóttir og séra Þorvaldur Víðisson þjónuðu ásamt séra Kristjáni Björnssyni vígslubiskupi í Skálholti og frú Agnesi M. Sigurðardóttur biskupi Íslands, sem flutti ávarp og leiddi bæn.

Eliza Reid forsetafrú og Þorsteinn Ingi Víglundsson, formaður sóknarnefndar, fluttu ávarp.

Jóhann Friðgeir Valdimarsson söng Jólaljós, lag Jónasar Þóris við texta …
Jóhann Friðgeir Valdimarsson söng Jólaljós, lag Jónasar Þóris við texta séra Hjálmars Jónssonar. mbl.is/Óttar

Edda Austmann og Jóhann Friðgeir Valdimarsson sungu lög. Matthías Stefánsson lék á fiðlu.

Kammerkór Bústaðakirkju flutti syrpu af jólalögum í útsetningu Guðna Guðmundssonar heitins, fyrrum organista kirkjunnar.

Edda Austmann söng lagið Himinganga.
Edda Austmann söng lagið Himinganga. mbl.is/Óttar
Matthías Stefánsson lék á fiðlu.
Matthías Stefánsson lék á fiðlu. mbl.is/Óttar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert