Raðir í jólasundið vegna takmarkana

Biðröð var fyrir utan Kópavogslaug í dag.
Biðröð var fyrir utan Kópavogslaug í dag. mbl is/Gunnlaugur

Víða voru raðir í sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu í dag en í ljósi hertra samkomutakmarkana mega sundlaugar taka við helmingi þess fjölda sem venjulega er leyfilegur. 

Að sögn starfsmanns í Vesturbæjarlaug er ekki óvanalegt að mikið sé að gera á aðfangadag. Vanalega sé mikið af fólki sem skellir sér í sund rétt fyrir jól.

Röð var í lauginni frá því klukkan tíu í morgun og fram að lokun, klukkan eitt. Einnig mátti sjá röð við Kópavogslaug um ellefuleytið í morgun en þar var lokað klukkan tólf. 

Í Laugardalslaug var einnig mikið að gera en þó engin röð, að sögn starfsmanns.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert