Viðauki við samning um rekstur Borgarleikhússins

Samkvæmt viðaukanum verða engar breytingar gerðar á árinu 2022 frá …
Samkvæmt viðaukanum verða engar breytingar gerðar á árinu 2022 frá núgildandi samningi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, og Eggert Benedikt Guðmundsson, formaður stjórnar Leikfélags Reykjavíkur, undirrituðu í morgun viðauka við gildandi samning Reykjavíkurborgar um rekstur Borgarleikhússins.

Viðaukinn gildir frá janúar 2022 til 31. desember 2024 og mun taka breytingum í skrefum til næstu þriggja ára.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að markmið gildandi rekstrarsamnings sé að í Reykjavík sé rekið metnaðarfullt leikhús sem höfði til borgarbúa og geri þeim kleift að njóta fjölbreyttra sviðslista.

Í viðaukanum er tekið mið af því að styrktarsamningar við þriðja aðila taki sambærilegri hagræðingu og gerð er til stofnana borgarinnar.

Samkvæmt viðaukanum verða engar breytingar gerðar á árinu 2022 frá núgildandi samningi. Að þeim tíma liðnum, eða frá janúar 2023 verður 50 prósent af rekstrarframlaginu áfram bundið við launavísitölu en engar verðbætur munu reiknast á það sem eftir stendur af rekstrarframlaginu, eða 50 prósent.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert