Fjárhagsstaðan hefur versnað

Niðurstöður könnunarinnar eru birtar í dag en þær leiða í …
Niðurstöður könnunarinnar eru birtar í dag en þær leiða í ljós að tæplega tíundi hluti launafólks býr við skort á efnislegum gæðum. mbl.is/Arnþór

Tæplega þriðjungur vinnandi fólks glímir við erfiða fjárhagsstöðu og á erfitt með að ná endum saman samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar Vörðu – rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins. Fjárhagsstaða fólks versnaði á seinasta ári og andlegri heilsu launafólks fer hrakandi milli ára.

Niðurstöður könnunarinnar eru birtar í dag en þær leiða í ljós að tæplega tíundi hluti launafólks býr við skort á efnislegum gæðum og um fjórir af hverjum tíu gætu ekki mætt óvæntum 80 þúsund króna útgjöldum án þess að stofna til skuldar.

Könnunin var gerð meðal launafóks í aðildarfélögum ASÍ og BSRB síðari hluta nóvember og byrjun desember sl. og bárust alls 8.768 svör.

„Það er gríðarlega alvarlegt að sjá að fjárhagsstaða launafólks versnar milli ára og ástandið er verst hjá einstæðum foreldrum,“ segir Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu, í fréttatilkynningu um niðurstöðurnar. „Við sjáum að um sex af hverjum tíu í hópi einstæðra foreldra sem eru á vinnumarkaði eiga erfitt með að ná endum saman og tveir af hverjum tíu búa við skort á efnislegum gæðum,“ segir hún.

Í könnuninni var spurt um áhrif heimsfaraldurs kórónuveirunnar á launafólk. Í ljós kom að ríflega helmingur finnur fyrir meira álagi í starfi vegna faraldursins og er hlutfallið hæst meðal kvenna sem vinna hjá ríki og sveitarfélögum þar sem sjö af hverjum tíu sögðust finna fyrir því að álagið hafi aukist.

„Andlegri heilsu launafólks fer hrakandi milli ára. Ríflega þrjár af hverjum tíu konum og tæplega þrír af hverjum tíu körlum mælast með slæma andlega heilsu, sem er mun meira en í sambærilegri könnun sem gerð var fyrir ári. Þá mældist andleg heilsa slæm hjá um tveimur af hverjum tíu,“ segir einnig um niðurstöður könnunarinnar.

Geta ekki mætt óvæntum útgjöldum

Haft er eftir Drífu Snædal, forseta ASÍ, að könnun Vörðu veiti skýra innsýn inn í veruleika launafólks sem hafi tekið á sig þungar byrðar í heimsfaraldrinum, hvort sem litið sé til fjárhagslegra þátta eða hrakandi andlegrar heilsu. „Enn á ný fáum við sönnur þess að sumt fullvinnandi fólk nær ekki endum saman og getur ekki mætt óvæntum útgjöldum. Það er verk að vinna í næstu kjarasamningum og í félagslegri umgjörð samfélagsins,“ segir Drífa.

„Þessar niðurstöður segja ekki bara sögu um fullorðna einstaklinga á vinnumarkaði heldur sögu fjölda barna sem búa við  ófullnægjandi lífsskilyrði vegna aðgerðaleysis stjórnvalda,“ er haft eftir Sonju Ýr Þorbergsdóttur, formanni BSRB í tilkynningunni.

„Foreldrar þeirra barna eru líklegri til að glíma við andleg veikindi, þau fá sjaldnar næringarríka máltíð og nauðsynlegan fatnað en önnur börn, búa frekar við skort og líklegri til að þurfa að flytja oft. Þeirra hagur verður ekki tryggður með því að halda áfram á þeirri braut að lækka skatta á þá ríkustu, viðhalda kerfum þar sem örfáir einstaklingar græða á sameiginlegum auðlindum eða með aðhalds- og niðurskurðarkröfu á mikilvægar stofnanir,  heilbrigðis- og félagsþjónustu og menntakerfið,“ segir Sonja Ýr.

Tveir af hverjum tíu búa við skort

Einnig kemur fram að fjárhagsstaða einstæðra foreldra er verst meðal vinnandi fólks. „Um það bil sex af hverjum tíu í hópi einstæðra foreldra á vinnumarkaði eiga mjög erfitt, erfitt eða nokkuð erfitt með að ná endum saman. Ríflega tveir af hverjum tíu búa við skort á efnislegum gæðum.

Tæplega sjö af hverjum tíu einstæðum mæðrum gætu ekki mætt óvæntum 80.000 króna útgjöldum og ríflega fimm af hverjum tíu einstæðum feðrum.

Tæplega þrjár af hverjum tíu einstæðum mæðrum geta ekki keypt nauðsynlegan fatnað fyrir börnin sín vegna fjárskorts og ríflega tveir af hverjum tíu einstæðum feðrum,“ segir m.a. í niðurstöðukafla könnunarinnar.

Svörin í könnuninni sýna einnig að ríflega helmingur kvenna og tæpur helmingur karla hefur neitað sér um einhverja tegund heilbrigðisþjónustu og að fjárhagsstaða og andleg heilsa innflytjenda er verri en innfæddra. Tæplega helmingur innflytjenda á mjög erfitt, erfitt eða nokkuð erfitt með að ná endum saman samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert