Segjast aldrei hafa upplifað annan eins kærleik

Frá leitinni á Þingvallavatni um helgina.
Frá leitinni á Þingvallavatni um helgina. mbl.is/Óttar

Fjölskylda bandaríska áhrifavaldsins og hjólabrettakappans Josh Neuman, sem var yngsti farþeg­inn í flug­vél­inni sem fórst við Þing­velli, ætlar að koma á fót góðgerðasjóði til að halda minningu hans á lofti.

Þau segjast jafnframt þakklát fyrir alla þá samúð sem þau hafa fundið frá Íslendingum. Þau hafi aldrei upplifað annan eins náungakærleik og á síðustu dögum. Íslendingar hafi umvafið fjölskylduna á þessum erfiðu tímum.

Þakkar fjölskyldan sérstaklega björgunarsveitum fyrir aðkomu þeirra að leitinni að vélinni og þeim sem fórust, í yfirlýsingu á Facebook-síðu Neuman.

Neuman var aðeins 22 ára gamall, en fjölskyldan rifjar upp að hann hafi alla tíð sótt í ævintýri og verið skapandi. Þá hafi hann ekki aðeins lifað lífinu heldur verið lífið sjálft. Lýsir fjölskyldan honum sem mjög góðhjörtuðum einstakling sem hafi haft mikil áhrif á þá sem voru honum nærri.

Josh Neuman var yngstur þeirra sem lést í flugslysinu á …
Josh Neuman var yngstur þeirra sem lést í flugslysinu á Þingvallavatni.

Besti dagur í lífi hans

Fjölskyldan segir hann jafnframt hafa látist við að gera það sem hann elskaði og það stuttu eftir að hann upplifði norðurljósin á Íslandi í fyrsta skipti, en hann hafði meðal annars sagt í kjölfarið að það væri besti dagur lífs hans.

Rifjað er upp að Neuman hafi haft fimm grundvallargildi í lífi sínu, en þau voru eftirfarandi:

  • Gerðu það sem þú hefur ástríðu fyrir.
  • Tala mun aldrei gera þig hamingjusaman.
  • Ef þér mistekst ekki ert þú ekki að leggja nægjanlega hart að þér.
  • Ekki hafa áhyggjur af því sem aðrir segja ef þú gerir það sem þú elskar að gera.
  • Lífið byrjar þar sem þægindaramminn endar.

Þetta var ekki í fyrsta skipti sem Neuman kom til Íslands, en síðasta sumar birti hann myndskeið á Youtube-síðu sinni þar sem hann leikur eftir þekkta senu úr kvikmyndinni The secret life of Walter Mitty þar sem aðalsöguhetjan rennur sér á hjólabretti af Fjarðarheiði niður í Seyðisfjörð.

Hann hefur jafnframt sett fjölmörg myndbönd á veituna þar sem hann rennir sér á hjólabretti niður stórar brekkur víða um heim.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert