Aðeins þriðjungur lagður inn vegna Covid-19

Landspítalinn í Fossvogi.
Landspítalinn í Fossvogi.

Af þeim 44 sem liggja nú smitaðir af kórónuveirunni inni á Landspítala var aðeins um þriðjungur, eða fimmtán manns, lagður inn vegna veikinda af völdum Covid-19 sjúkdómsins.

Þá liggja 23 smitaðir sjúklingar á spítalanum, sem ekki voru lagðir inn vegna Covid-19.

Loks treystir spítalinn sér ekki til að skera úr um hvort sex aðrir sjúklingar, sem eru smitaðir af kórónuveirunni, hafi verið lagðir inn á spítalann vegna Covid-19 veikinda eða af öðrum ástæðum.

Þetta má ráða af uppgefinni tölfræði spítalans.

Smitum fjölgar og innlögnum fækkar

Sú þróun heldur því áfram sem mbl.is hefur áður greint frá, að innlögnum á spítalann vegna Covid-19 fækkar eða þá að fjöldinn stendur nánast í stað, á sama tíma og fjöldi staðfestra smita í samfélaginu hefur aldrei verið meiri.

Þannig var í gær greint frá metfjölda smita. Og það met var slegið svo um munar í dag.

Landspítalinn veitir einungis upplýsingar um þessar ástæður innlagna á fimmtudögum. Það hóf hann fyrst að gera í janú­ar síðastliðnum, í kjöl­far gagn­rýni fjöl­miðla á dræma upp­lýs­inga­gjöf.

Af þeim 36 sjúk­ling­um sem lágu inni á spít­al­an­um með kór­ónu­veiru­smit síðasta fimmtudag, höfðu fimmtán verið lagðir inn vegna Covid-19 sjúk­dóms­ins. 

Í vikunni þar á undan voru þeir 19, þar áður 20, og fimmtu­dag­inn 20. janú­ar voru þeir 23 tals­ins.

Ellefu með örvunarskammt

Af þeim fimmtán sem liggja inni og voru lagðir inn vegna Covid-19, þá hafa 11 verið bólusettir með örvunarskammti.

Hinir fjórir flokkast sem ekki bólusettir samkvæmt skilgreiningu yfirvalda, þar sem þeir hafa annað hvort fengið einn eða engan skammt bóluefnis.

Landspítalinn hefur gert þann fyrirvara að þrátt fyr­ir að sjúk­ling­ur hafi upp­runa­lega ekki verið lagður inn vegna Covid-19 þá geti komið til þess að veik­indi af völd­um veirunn­ar verði al­var­leg, og jafn­vel leitt til þess að það þurfi að leggja viðkom­andi á gjör­gæslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert