Nýr spítali svari ekki þörf fyrir legurými

Búist er við mestri aukningu í öldrunar- og endurhæfingarþjónustu.
Búist er við mestri aukningu í öldrunar- og endurhæfingarþjónustu. mbl.is/Ómar Óskarsson

Þörf verður fyrir um 50% fleiri rými á Landspítala árið 2040, en áætlað er að verði í boði þegar nýr Landspítali opnar á Hringbraut árið 2026. Þetta kemur fram í skýrslu sem ráðgjafafyrirtækið McKinsey vann fyrir heilbrigðisráðuneytið, um framtíðarþróun þjónustu Landspítala

Ef ekki er gripið til stórtækra aðgerða af hálfu Landspítala og heilbrigðiskerfisins í víðara samhengi er því spáð að vinnuaflsþörf muni aukast um um það bil 36% og kostnaður um u.þ.b. 90%. 

Þá lítur út fyrir að þörfin fyrir rými á Landspítala verði búin að aukast um 80% árið 2040.

Hægt er að grípa til nokkurra lykilaðgerða til þess að sporna við þessu og segir heilbrigðisráðherra mikilvægt að skýrslan hafi verið unnin. 

Bæta þarf verulega þjónustu við eldra fólk.
Bæta þarf verulega þjónustu við eldra fólk. mbl.is/Eggert

Mest aukning í öldrunar- og endurhæfingarþjónustu

Faraldurinn leiddi í ljós ýmsa ágalla á heilbrigðiskerfinu og lék þar skortur á legurýmum stórt hlutverk. Samkvæmt grunnspánni er áætlað að nauðsynlegum rýmum fjölgi um 79%, eða úr 624 í 1.120 og stafar aukningin af núverandi skorti á rýmum (+110 rými), lýðfræðilegum áhrifum (+407 rými) og ólýðfræðilegum áhrifum (–21 rými).

Í skýrslunni er staðhæft að það væri langt umfram þann fjölda sem nú er fyrirhugaður eftir að nýja sjúkrahúsbyggingin við Hringbraut verður tekin í notkun.

Gert er ráð fyrir að nauðsynlegum rýmum fjölgi um 79%, …
Gert er ráð fyrir að nauðsynlegum rýmum fjölgi um 79%, eða úr 624 í 1.120. Stafar aukningin af núverandi skorti á rýmum. Graf/Skýrsla McKinsey

Búist er við mestri aukningu í öldrunar- og endurhæfingarþjónustu (+3,1%) en minnstri í kvenna- og barnaþjónustu (+0.0%) og geðþjónustu (+0.6%).

Lykilaðgerð að setja kraft í heimahjúkrun og endurhæfingu

Ákveðnar lykilaðgerðir sem raktar eru í skýrslunni eru sagðar geta vegið upp á móti hinni auknu aðfangaþörf Landspítala. Í því samhengi er lagt til að færa langtíma- og fyrsta stigs þjónustu, sem nú er veitt á Landspítala, yfir í hentugra þjónustuumhverfi. Hefði það í för með sér lægri kostnað og líklega betri þjónustugæði. Þetta gæti mætt um helmingnum af þörf fyrir rými á legudeildum og komum á göngudeildir. 

Til þess þyrfti að búa til það sem samsvarar um 240 rýmum í t.d. heimahjúkrunar-, öldrunar- og endurhæfingarþjónustu, auk skipulagðs átaks til að færa þessa umönnunar- og fyrsta stigs þjónustu yfir á þjónustustofnanir utan Landspítala.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra sagði á þinginu í dag að skýrslan hefði einmitt verið unnin til þess að kortleggja stöðu heilbrigðiskerfisins. Lagði hann þar nokkra áherslu á fyrrgreind atriði, þ.e. að bæta heimahjúkrun og fjölga hjúkrunarrýmum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert