Smári nýr formaður Kirkjugarðasambands Íslands

Smári Sigurðsson, nýr formaður Kirkjugarðasambands Íslands.
Smári Sigurðsson, nýr formaður Kirkjugarðasambands Íslands. Ljósmynd/Aðsend

Smári Sigurðsson framkvæmdastjóri Kirkjugarða Akureyrar (KGA) var einróma kosinn nýr formaður Kirkjugarðasambands Íslands (KGSÍ)  á 26. aðalfundi sambandsins sem haldinn var síðastliðinn laugardag 14. maí.

Þórsteinn Ragnarsson fráfarandi forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma og formaður KGSÍ frá upphafi KGSÍ (1995) gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku.

Með Smára í stjórn KGSÍ voru kosnir Guðmundur Rafn Sigurðsson framkv.stj. kirkjugarðaráðs og Ingvar Stefánsson nýráðinn framkv.stj. KGRP. Varastjórn skipa Albert Eymundsson frá Höfn og Anna Kristjánsdóttir frá Akranesi.

Fulltrúar frá kirkjugörðum víðs vegar af landinu mættu á fundinn en þar lagði stjórn sambandsins fram skýrslu og reikninga ársins 2021, að því er fram kemur í tilkynningu. 

Smári Sigurðsson er garðyrkjumaður að mennt og hefur stýrt KGA frá 1997. Áður vann hann sem verktaki í kirkjugörðum víða um land.  Smári hefur sinnt margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir samfélagið og má þar meðal annars nefna störf með hjálparsveitunum en hann var varaformaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá 2005- 2011 og síðan formaður 2015-2019.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert