Sólríkt og ágætlega milt

Spáð er hita á bilinu 4 til 14 stig.
Spáð er hita á bilinu 4 til 14 stig. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Veðurstofa Íslands spáir norðlægri átt, 3-8 m/s og dálítil súld norðan- og austanlands fram eftir degi. Allvíða verður þó bjartviðri syðra og stöku síðdegisskúrir þar. Hiti 4 til 14 stig, hlýjast syðst.

Skýjað og svalt verður fram á kvöld fyrir norðan og austan í dag en léttir síðan til þar.

„Annars víða bjart og sólríkt veður og ágætlega milt,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings

Veður­vef­ur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert