Björgunarsveitarmenn höfðu í mörgu að snúast á höfuðborgarsvæðinu í nótt á meðan hvassviðrið reið yfir. Slysavarnafélagið Landsbjörg þurfti að fara í þó nokkur útköll en þeim hefur fækkað það sem af er morgni og færast nú í austur.
Karen Ósk Lárusdóttir verkefnastjóri hjá Landsbjörg segir útköllin flest hafa verið af hefðbundnu tagi og varðað fjúkandi muni á borð við trampólín, þakplötur, ruslatunnur og girðingar.
Að sögn Karenar er björgunarsveitin með hefðbundinn viðbúnað á Austurlandi vegna þeirrrar rauðu viðvörunar sem er væntanleg á Austfjörðum klukkan 12 í dag. Hún verður í gildi þar til klukkan níu í kvöld. Þá tekur við appelsínugul viðvörun fram eftir nóttu.
Tilkynning hefur nú þegar verið send inn á Safe Travel sem á að miðla nauðsynlegum upplýsingum um óveðrið til þeirra ferðamanna sem eru staddir hérlendis.