Hægari vöxtur en reiknað var með

Mynd úr safni af Grímsvötnum.
Mynd úr safni af Grímsvötnum. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Rennslið úr Grímsvötnum nálgast nú tæpa 300 rúmmetra á sekúndu. Vöxturinn er hægari en reiknað var með í upphafi.

Miðað við þessa þróun er líklegast að hámarksrennsli út úr vötnunum verði seinnipart fimmtudags eða aðfaranótt föstudags, að því er Veðurstofan greinir frá.

Reiknað er með að það taki hlaupvatn um sólarhring að renna undir Skeiðarárjökul frá Grímsvötnum og niður í farveg Gígjukvíslar við þjóðveg 1.

Áfram er reiknað með að hámarksrennsli út úr vötnunum verði um 500 m3/s. Líklegt er að rennslið við brúna yfir Gígjukvísl verði minna en út úr vötnunum sjálfum vegna dempunar hlauptoppsins í lónum framan við Skeiðarárjökul.

Engin áhrif á mannvirki

Rennslið við brúna í þessu hlaupi mun því jafnast á við mikið sumarrennsli og ekki hafa nein áhrif á mannvirki.

Lítil sem engin skjálftavirkni er í eldstöðinni og enginn gosórói hefur mælst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka