Fundaði með viðskiptaráðherra Suður-Kóreu

Lilja hitti viðskiptaráðherra Suður-Kóreu.
Lilja hitti viðskiptaráðherra Suður-Kóreu. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra fundaði í dag með Ahn Duk-geun, viðskiptaráðherra Suður-Kóreu, í ferð viðskiptanefndarinnar til Suður-Kóreu í tilefni af 60 ára stjórnmálasambandi milli landanna.

Lilja kynnti sér einnig stuðningskerfi suður-kóresks viðskiptalífs er hún heimsótti systurstofnun Íslandsstofu í Kóreu, KOTRA (Korea Trade Investment Promotion Agency) sem styður við um 200.000 suður-kóresk fyrirtæki í alþjóðaviðskiptum sem og erlend fyrirtæki sem vilja fjárfesta í Suður-Kóreu.

Ljósmynd/Stjórnarráðið

Heimsótti höfuðstöðvar Alvogen í Suður-Kóreu

Þá heimsótti Lilja höfuðstöðvar íslenska lyfjafyrirtækisins Alvogen í Suður-Kóreu en um 400 manns starfa hjá fyrirtækinu í landinu, flestir við sölu og markaðssetningu.

Samningar á sviði tvísköttunar og fríverslunar eru í gildi milli landanna en árið 2020 nam umfang inn- og útflutnings milli Íslands og Suður-Kóreu um 8 milljörðum króna. Suður-kóresk fyrirtæki hafa fjárfest í íslenskum fyrirtækjum á umliðnum árum, má þar nefna kaup Kóreubúa á tölvuleikjafyrirtækinu CCP árið 2018 fyrir um 46 milljarða íslenskra króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert