Verðmat fasteigna hækkaði um 2.100 milljarða

Verðmat fasteigna hækkaði um 2.100 milljarða milli ára.
Verðmat fasteigna hækkaði um 2.100 milljarða milli ára. mbl.is/Kristinn Magnússon

Nýtt fasteignamat tekur gildi í dag, en í því felst áætlað verðmat allra fasteigna hér á landi. Alls eru um 220 þúsund fasteignir á Íslandi og jókst verðmæti þeirra talsvert milli ára, eða um 2.100 milljarða króna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS).

Sérfræðingar fasteignaskrár HMS mátu allar fasteignir landsins, bæði íbúðarhús og atvinnuhúsnæði, og telst heildarvirði þeirra vera 12.800 milljarðar króna. 

Jafngildir það 33 milljónum króna á hvern íbúa eða um 42 milljónum á hvern íbúa sem er 18 ára eða eldri.

Fleiri fái bætur vegna stuðningsaðgerðar ríkisstjórnar

Meðal annars er stuðst við fasteignamatið við útreikning vaxtabóta frá ríkinu og getur hækkun matsins leitt til þess að sumir missi rétt til bóta, ef nýuppfærð eignastaða þeirra skerðir bæturnar að fullu.

Ríkisstjórnin kynnti þó nýverið að eignaskerðingarmörk í vaxtabótakerfinu muni hækka um 50 prósent í byrjun árs 2023, sem verður til þess að fleiri munu fá bætur en hefðu ella fengið eftir gildistöku nýja fasteignamatsins. Um er að ræða eina af stuðningsaðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna nýgerðra kjarasamninga.

Fasteignamatið er endurmetið árlega og var matið fyrst kynnt fasteignaeigendum í júní og miðaðist við gangverð fasteigna í febrúar 2022. Verðþróun það sem eftir lifir af árinu kemur ekki inn í matið fyrr en árið á eftir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert