Segja traust á ríkissáttasemjara hafa skaðast

Frá miðstjórnarfundi ASÍ í október.
Frá miðstjórnarfundi ASÍ í október. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Miðstjórn ASÍ segir traust á embætti ríkissáttasemjara hafa skaðast með því að leggja fram ótímabæra miðlunartillögu í kjaradeilu Eflingar og Samtaka Atvinnulífsins (SA).

Þetta kemur fram í ályktun miðstjórnar ASÍ, en stjórnin hefur fundað frá því klukkan fimm í dag eftir að ríkissáttasemjari setti fram tillöguna í morgun. 

Miðstjórn telur að færa megi rök fyrir og véfengja hvort embætti sáttasemjara hafi með þessum hætti farið út fyrir þær valdheimildir sem embættinu eru settar í lögum um stéttarfélög og vinnudeilur.

Framganga embættisins er atlaga að sjálfstæðum samningsrétti stéttarfélaga, gengur gegn áratuga venjum um samskipti aðila vinnumarkaðarins og skorar miðstjórn ASÍ á ríkissáttasemjara að draga hana til baka.

Ekki enn skapast neyðarástand

Þá segir að stjórnin telji heimild til að leggja fram miðlunartillögu vera neyðarúrræði sem ekki sé tímabært að leggja fram þar sem enn standi yfir atkvæðisgreiðsla um verkfall hjá félagsmönnum Eflingar. Því hafi neyðarástand ekki skapast. 

ASÍ telur heimild sáttasemjara jafnframt bundna við að átt hafi sér stað náið samráð við aðila um efni hennar og að hún eigi ekki að leggjast fram án þess að hafa a.m.k. þegjandi samþykki beggja aðila. Hvorugt þessara skilyrði sé uppfyllt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert