Lítil skjálftahrina í Mýrdalsjökli

Staðsetning skjálftanna samkvæmt mælingum Veðurstofu.
Staðsetning skjálftanna samkvæmt mælingum Veðurstofu. Ljósmynd/Aðsend

Sjö skjálftar mældust í Mýrdalsjökli á milli klukkan sjö og níu í kvöld. Fimm þeirra voru yfir tveimur stigum en sá stærsti 2,6 stig að stærð. Ekki hefur skjálftavirknin verið mikil eftir það, að sögn Einars Bessa Gestssonar, veðurfræðings á Veðurstofu.

„Þetta er Mýrdalsjökull og þá fylgjumst við alltaf vel með,“ segir Einar í samtali við mbl.is. 

Virk eldstöð og því fylgst með

„Það er alls ekki óalgengt að það verði skjálftahrinur í Mýrdalsjökli,“ bætir hann við og nefnir að skjálftar á svæðinu hafi farið yfir þrjú stig í desember, október og nóvember.

Erfitt sé að segja til um nákvæma orsök skjálfta á þessu stigi en um er að ræða virka eldstöð og því alltaf efni til að fylgjast með þróun mála á svæðinu.

Jarðskjálfti að stærðinni 3,8 varð í norðan­verðri Kötlu­öskju í desember en þá voru ekki uppi merki um óvenjulega virkni.

Mýrdalsjökull.
Mýrdalsjökull. Morgunblaðið/Sigurður Bogi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert