Níu skjálftar mældust í gær

Horft til vesturs yfir Mýrdalsjökul og Kötlu.
Horft til vesturs yfir Mýrdalsjökul og Kötlu. mbl.is/RAX

Níu jarðskjálftar mældust í Mýrdalsjökli í gær, þar af mældust sjö þeirra upp úr klukkan hálfátta í gærkvöldi.

Stærsti skjálftinn var 2,6 að stærð og varð kl. 19.33. Skjálftarnir eru á stærðarbilinu 1,5 til 2,6.

„Svona jarðskjálftavirkni er tiltölulega algeng í Mýrdalsjökli. Svipuð virkni, þó með stærri skjálftum yfir 3 að stærð, varð síðast í desember og nóvember 2022,“ segir í athugasemd jarðvísindamanns hjá Veðurstofu Íslands.

Náttúruvárvakt Veðurstofunnar fylgist áfram með stöðunni í Mýrdalsjökli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert