Hótel Akureyri fær heimild til stækkunar

Svona gæti götumyndin rðið þegar Hótel Akureyri verður stækkað við …
Svona gæti götumyndin rðið þegar Hótel Akureyri verður stækkað við hlið Skjaldborgar lengst t.v. Ljósmynd/Landslag

„Stækkun hótelsins hefur verið á teikniborðinu í nokkur ár,“ segir Daníel Smárason, eigandi Hótels Akureyrar. Hótelið er í húsi við Hafnarstræti 67-69 sem heitir Skjaldborg og segir hann að áform snúist um að byggja við það húsnæði. Þar verður ný móttaka, kaffibar og samtals 52 herbergi og sé ætlunin að starfsemi verði hafin þar fyrir jól.

Hins vegar er ætlunin að byggja sams konar hús á lóð númer 75 við Hafnarstræti og segir Daníel að stærð þess húss og fjöldi herbergja séu ekki endanlega ákveðin.

Ljósmynd/Landslag

„Uppbygging á nýjum miðbæ á Akureyri er farin að taka á sig mynd og við erum afar spennt yfir því að geta verið kyndilberar klassískra sjónarmiða hvað varðar útlit og hönnun í þessum nýja hluta miðbæjarins,“ segir Daníel.

„Húsin okkar eru glæsileg og eiga sér einstaka sögu sem við ætlum okkur að varðveita. Þar af leiðandi viljum við að nýbyggingarnar sem rísa senn verði í takt við þær, en hækki þjónustustig bæði fyrir heimamenn og gesti.“

Hægt er að nálgast umfjöllunina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert