Flugskóli Reykjavíkur tekur við af Flugakademíunni

Bragi Sigþórsson og Hjörvar Hans Bragason frá Flugskóla Reykjavíkur og …
Bragi Sigþórsson og Hjörvar Hans Bragason frá Flugskóla Reykjavíkur og Nanna Kristjana Traustadóttir framkvæmdastjóri Flugakademíunnar. Ljósmynd/Aðsend

Flugskóli Reykjavíkur og Flugakademía Íslands náðu í dag samkomulagi um að þeir fyrrnefndu taki að sér þjónustu við virka nemendur Flugakademíunnar. Flugakademía Íslands, sem er dótturfélag Keilis, miðstöðvar vísinda fræða og atvinnulífs, mun í kjölfarið hætta rekstri.

„Það eru vonbrigði að þurfa að hætta rekstri félagsins. Það er þó ekkert launungamál að rekstur Flugakademíunnar hefur verið gríðarlega krefjandi í áraraðir,“ er haft eftir Nönnu Kristjönu Traustadóttur, framkvæmdastjóra Keilis, í tilkynningu.

„Starfsfólk hefur unnið baki brotnu að því að tryggja öflugt nám í hæsta gæðaflokki og eiga mikið hrós skilið fyrir óeigingjörn störf oft við erfiðar aðstæður.“

Eini skólinn með samtvinnað nám til atvinnuflugs

Nemendur Flugakademíunnar hafa val um það hvort þeir haldi áfram námi sínu í Flugskóla Reykjavíkur, eða sæki það annað. En í kjölfar samkomulagsins tekur Flugskóli Reykjavíkur við af Flugakademíunni sem eini skólinn á Íslandi sem býður upp á samtvinnað nám til atvinnuflugs.

Í tilkynningunni kemur fram að Flugakademían hafi glímt við langvarandi rekstrarvanda og stjórnendum félagsins verið ljóst að grípa þurfi til aðgerða til að tryggja nemendum áframhaldandi námsúrræði. Samkomulag við Flugskóla Reykjavíkur sé fyrst og fremst stillt upp með hag nemenda í forgrunni.

„Flugskóli Reykjavíkur hefur undanfarin misseri markvisst unnið að því að auka námsframboð skólans og víkka út starfsemina. Í vor kynntum við tvær námsbrautir í atvinnuflugmannsnámi, bæði staðar- og fjarnám. Þeim var vel tekið og fóru vel af stað. Það samrýmist því vel okkar áformum að taka við nemendum frá Keili.

Við hjá Flugskóla Reykjavíkur tökum þeim opnum örmum og hlökkum til að útskrifa nýja atvinnuflugmenn á þessum tímum grósku og tækifæra í okkar geira,“ er haft eftir Hjörvari Hans Bragasyni, skólastjóra Flugskóla Reykjavíkur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert