Stjórnendur Ríkisútvarpsins telja rekstur TikTok-rásar samræmast lögbundnu hlutverki þess, að því er fram kemur í minnisblaði frá fundi stjórnar opinbera hlutafélagsins í janúar.
Viðvera ríkismiðilsins á samfélagsmiðlinum hefur verið umdeild en í minnisblaðinu segir að gert sé ráð fyrir að RÚV nýti sér miðlunarleiðir til að koma efni sínu á framfæri. Undir það falli samfélagsmiðlar, svo sem TikTok. Einn fréttamaður sérhæfi sig í framsetningu frétta á samfélagsmiðlum og lögð sé áhersla á að svara spurningum fylgjenda.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.