Bjart með köflum í dag

Spákortið á hádegi í dag.
Spákortið á hádegi í dag. Kort/mbl.is

Í dag verður vestlæg átt og víða 5 til 10 metrar á sekúndu. Bjart verður með köflum og líkur á stöku skúrum eða slydduéljum fram eftir degi, en léttskýjað suðaustan til. Hiti verður á bilinu 4 til 10 stig yfir daginn.

Suðlægari átt verður á morgun og hlýnar lítillega. Hægt vaxandi suðaustanátt verður annað kvöld og þykknar upp sunnan- og vestanlands með dálítilli rigningu.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert