Katrín komin með umboðið

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, á Bessastöðum.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, á Bessastöðum. mbl.is/Hari

Forseti Íslands hefur veitt Katrínu Jakobsdóttir, formanni Vinstri grænna, umboð til stjórnarmyndunar. Þetta kom fram í máli hans rétt í þessu.

Forsetinn sagði að í ljós hafi komið að leiðtogar VG, Framsóknarflokks, Samfylkingarinnar og Pírata séu reiðubúnir til að vinna að myndun nýrrar ríkisstjórnar. Þess vegna hafi hann kallað Katrínu á sinn fund.

Guðni Th. sagði að það sem núna hafi breyst sé að Katrín hafi núna umboð til stjórnarmyndunar og því sé komin á sú skuldbinding að hún vinni að stjórnarmyndun.

Hann bætti við að nú komist festa á viðræðurnar og þær séu háðar tímamörkum.

Forsetinn bjóst við því að heyra frá gangi viðræðnanna um og eftir helgi.

mbl.is/Hari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert