Úrslit kunn í Skorradalshreppi

Við Skorradalsvatn.
Við Skorradalsvatn. mbl.is/Árni Sæberg

Úrslit sveitarstjórnarkosninga 2018 í Skorradalshreppi eru kunn, á kjörskrá voru 45 manns og af þeim kusu 39. Kjörsókn var 87%.

Aðalmenn eru þau: Jón Eiríkur Einarsson Mófellsstaðakoti, sem fékk 26 atkvæði, Árni Hjörleifsson Horni, sem fékk 18 atkvæði, Ástríður Guðmundsdóttir Neðri-Hreppi, sem fékk 17 atkvæði, Sigrún Guttormsdóttir Þormar Dagverðarnesi 72, sem fékk 17 atkvæði og Pétur Davíðsson Grund 2, sem fékk 15 atkvæði.

 Varamenn:

Jón Arnar Guðmundsson Fitjum

Valdimar Reynisson Hvammshlíð

Þórhildur Ýr Jóhannesdóttir Grund 2

Jón Friðrik Snorrason Birkimóa 3

Gunnar Rögnvaldsson Dagverðarnesi 72

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert