Tvær vilja verða ritari VG

Sóley Björk Stefánsdóttir, kosningastjóri VG í Norðausturkjördæmi, og Guðrún Ásta …
Sóley Björk Stefánsdóttir, kosningastjóri VG í Norðausturkjördæmi, og Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, fyrrum bæjarfulltrúi VG í Hafnarfirði, gefa báðar kost á sér í embætti ritara VG. Samsett mynd

Tvær eru í framboði til embættis ritara Vinstri grænna, þær Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri, og Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, fyrrum bæjarfulltrúi í  Hafnarfirði. Sitjandi ritarinn Ingibjörg Þórðardóttir sækist ekki eftir endurkjöri. 

Rafrænn landsfundur Vinstri grænna fer fram á morgun klukkan tíu en þá verður kosið í stjórn og flokksráð en mörg stjórnarframboð hafa þegar borist að því er fram kemur í tilkynningu frá flokknum.

Þar verða einnig lagðar fram kosningaáherslur fyrir Alþingiskosningar í september.

Rúnar Gíslason gjaldkeri flokksins sækist þá eftir endurkjöri og hafa engin mótframboð borist enn sem komið er að sögn Berglindar Häsler, samskipta- og viðburðastjóra VG.

Katrín og Guðmundur gefa aftur kost á sér

Formaður flokksins Katrín Jakobsdóttir og varaformaður, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, gefa bæði kost á sér til endurkjörs og enn hafa ekki borist nein mótframboð.

Dagskrá fundarins, sem verður streymt á vefsvæðinu landsfundur.vg.is, er svohljóðandi:

10:00 Fundur settur

10:15 Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG, flytur ávarp í opnu streymi.

12:30 Kosning til stjórnar. Niðurstöður verða kynntar jafnóðum.

15:30 Oddvitar kynna kosningaáherslur í opnu streymi.

Ræðu Katrínar verður streymt af vef mbl.is.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert