Eyjólfur leiðir listann í NV

Ágúst Heiðar og Eyjólfur eru í tveimur efstu sætunum.
Ágúst Heiðar og Eyjólfur eru í tveimur efstu sætunum. Ljósmynd/Aðsend

Eyjólfur Ármannsson skipar fyrsta sæti X-F, framboðslista Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi.

Eyjólfur er lögfræðingur og formaður Orkunnar okkar sem eru samtök þeirra sem vilja standa vörð um sjálfsákvörðunarrétt Íslands í orkumálum. Hann hefur undanfarið meðal annars gætt hagsmuna landeigenda í Arnarfirði og Dýrafirði í þjóðlendumálum.

Ágúst Heiðar Ólafsson, kerfóðrari hjá Norðuráli, skipar annað sæti og Þórunn Björg Bjarnadóttir, fyrrum bóndi, það þriðja. Hermann Jónsson Bragason vélstjóri skipar fjórða sæti, að því er segir í tilkynningu.

Framboðslistinn:

  1. Eyjólfur Ármannsson lögfræðingur LL.M.
  2. Ágúst Heiðar Ólafsson, kerfóðrari hjá Norðuráli
  3. Þórunn Björg Bjarnadóttir, fyrrum bóndi
  4. Hermann Jónsson Bragason vélstjóri
  5. Sigurlaug Sigurðardóttir náttúrufræðingur
  6. Sigurjón Þórðarson líffræðingur
  7. Sigríður Inga Sigurjónsdóttir dýralæknir
  8. Jenný Ósk Vignisdóttir landbúnaðarstörf
  9. Erna Gunnarsdóttir öryrki
  10. Eyjólfur Guðmundsson, vinnur á sambýli f. fatlaða
  11. Sigurlaug Arnórsdóttir öryrki
  12. Magnús Kristjánsson, rafvirkjameistari/sjómaður/eldri borgari
  13. Bjarki Þór Pétursson, verkamaður/öryrki
  14. Einir G. Kristjánsson, öryrki/verkefnastjóri
  15. Kristjana S. Vagnsdóttir, eldri borgari
  16. Jón Kr. Ólafsson, söngvari og safnvörður
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert