Helga sækist eftir 2.-3. sæti

Helga Ingólfsdóttir.
Helga Ingólfsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Helga Ingólfsdóttir sækist eftir 2.-3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Í tilkynningu segist hún óska eftir stuðningi til þess að vinna áfram að betri bæ Hafnfirðingum til heilla.

„Í störfum mínum sem bæjarfulltrúi hef ég ávallt lagt áherslu á góða þjónustu við bæjarbúa þar sem jafnræði og góð stjórnsýsla er í öndvegi og skýr markmið um ábyrgan rekstur og sjálfbærni,“ segir í tilkynningunni en Helga hefur setið í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í að verða þrjú kjörtímabil.

Helga fékk réttindi sem viðurkenndur bókari árið 2019 og lauk áður prófi í rekstri og viðskiptum á vegum EHI. Um árabil rak hún eigið fyrirtæki á verktakamarkaði og starfaði í framhaldi fyrir erlent fyrirtæki á byggingamarkaði í nokkur ár. Auk starfa sinna sem bæjarfulltrúi starfar Helga sem bókari í hlutastarfi og frá árinu 2013 hefur hún sinnt trúnaðarstörfum sem stjórnarmaður í stjórn VR og frá árinu 2019 hefur hún verið fulltrúi VR í stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna.

Þá hefur Helga gegnt stöðu formanns Umhverfis- og framkvæmdaráðs og varaformanns Fjölskylduráðs frá árinu 2014.

„Þar hef ég verið í forsvari fyrir ýmis framfaramál og má þar nefna umhverfismálin, uppbyggingu íþróttamannvirkja, byggingu nýs hjúkrunarheimilis að Sólvangi ásamt endurbótum á eldra húsi, frístundastyrk fyrir eldri borgara, stofnun vinnustaðar fyrir fólk með fötlun á Suðurgötu 14 og fjölgun búsetukjarna. Þá hef ég hef einnig beitt mér sérstaklega fyrir því að hagkvæmni sé gætt í útboðum á verkefnum á vegum sveitarfélagsins með góðum árangri,“ segir í tilkynningunni.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert