Það er best að eldast í Svíþjóð en verst er að verða gamall í Afganistan, samkvæmt nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna. Ísland er í níunda sæti og Noregur í öðru sæti yfir þau lönd þar sem gott er að eldast.
Í skýrslunni Gloabl Age Watch Index er farið yfir lífsgæði eldri borgara í 91 landi. Samkvæmt skýrslunni er víða pottur brotinn í aðbúnaði eldra fólks en árið 2050 verða í fyrsta sinn fleiri eldri borgarar í heiminum heldur en börn yngri en fimmtán ára.
20 efstu löndin á lífsgæðalista fyrir eldra fólk
1. Svíþjóð
2. Noregur
3. Þýskaland
4. Holland
5. Kanada
6. Sviss
7. Nýja-Sjáland
8. Bandaríkin
9. Ísland
10. Japan
11. Austurríki
12. Írland
13. Bretland
14. Ástralía
15. Finnland
16. Lúxemborg
17. Danmörk
18. Frakkland
19. Síle
20. Slóvenía