Það er fátt meira viðeigandi en að útbúa eitthvað „létt“ í kvöldmat þegar svona vel viðrar. Dröfn Vilhjálmsdóttir matarbloggari á Eldhússögum gaf uppskrift að fantaflottum kjúklingavefjum á dögunum á bloggsíðu sinni.
Uppskrift fyrir 4 vefjur:
- 1 poki kjúklingalundir frá Rose Poultry (700 g)
- gott kjúklingakrydd (ég notaði salt, pipar, best á allt frá Pottagöldrum og chili explosion)
- kál
- klettasalat
- tómatar, skornir í bita
- gúrka, skorin í bita
- ferskt kóríander, saxaður gróft
- 1 stór ferskur mangó, skorinn í bita
- cashew hnetur, saxaðar gróft
- tortilla pönnukökur
- mangósósa
<strong>mangósósa uppskrift:</strong>
- 200 g grísk jógúrt
- 3 msk mango chutney
- 1 tsk karrí
- 1 vænn biti ferskt mangó – (líka hægt að nota nokkra bita af frystu mangói)
- salt og pipar eftir smekk
HÉR er hægt að sjá nákvæmlega hvernig best er að bera sig að við eldamennskuna.
Kjúklingavefjur.
Ljósmynd/Dröfn