Græna ofurskálin í anda GLÓ

Kremuð mangóskál með kókos og avókadókeim. Toppuð með kókosrjóma, ávöxtum …
Kremuð mangóskál með kókos og avókadókeim. Toppuð með kókosrjóma, ávöxtum og granóla. mbl.is/TM

Ég elska grænu ofurskálina á GLÓ og kem stundum við í Faxafeni þegar ég vil gera vel við mig og fæ mér slíka skál eða morgunverðartilboðið en þá fylgir kaffi og orkuskot með á 990 krónur.

Það er þó ekki svo gott að ég geti gert mér ferð þangað eins oft og mig langar í umrædda skál svo ég hófst handa við að brasa slíkt gúmmelaði heima fyrir. Afraksturinn var mjög góður; kremuð og ljúffeng skál sem ég toppaði með sykurlausu heimagerðu granóla og ávöxtum. Ljúffengt!

Græn ofurskál fyrir 2 

1 lárpera 
1 væn lúka ferskt spínat 
1 banani 
1,5 bollar frosið mangó 
1 bolli kókosmjólk í dós 

Þynnið með vatni ef þarf 
Allt sett í öflugan blandara og blandað uns silkimjúkt.

Heimilisfólkið velur svo sinn topp á skálina, Ávexti, granóla og …
Heimilisfólkið velur svo sinn topp á skálina, Ávexti, granóla og jafnvel smá slettu af döðusírópi um helgar. mbl.is/TM
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert