Textílhönnuðurinn Gunila Axén er engri lík. Litríkur persónuleiki sem elskar að hafa náttúruna allt í kringum sig og plöntur ráða ríkjum á heimili hennar. Gunila býr í fallegu gömlu steyptu húsi í Gautlandi í Svíþjóð.
Þar hefur hún hlaðið plöntum í kringum sig en þær eru henni mikill innblástur í textílhönnun hennar. Gunila hannar meðal annars efni fyrir barnafatamerkið Polarn O. Pyret auk þess sem dúkar, rúmföt og gardínur með mynstrum hennar eru ákaflega vinsæl.
Gunila leggur mikið upp úr ljósum við, opnum hillum, grænum plöntum og náttúrulegum efnum. Heiðarlegt og náttúrulegt útlit einkennir hennar stíl og vinnu en hún framleiðir lífræn efni eftir hönnunum sínum.
Merkilega lítið sést í undurfagurt eldhúsið á myndunum og hefur ljósmyndarinn litla þökk fyrir en þó dugar það sem sést til að veita okkur innlit í einstakan og bjartan stíl Gunilu.