Fljótlegt spaghettí með kjúklingi í bragðmikilli sósu úr sólþurrkuðum tómötum

Fljótlegt spaghettí sem slær alltaf í gegn.
Fljótlegt spaghettí sem slær alltaf í gegn. mbl.is/Linda Ben

Þetta gómsæta spaghettí er fullkomið á fallegum degi. Hér eru tómatar í lykilhlutverki; bæði kirsuberjatómatar og sólþurrkaðir. 

Það er Linda Ben sem á heiðurinn að þessari uppskrift og eins og allir vita þá klikkar hún seint. 

Fljótlegt spaghettí með kjúklingi í bragðmikilli sósu úr sólþurrkuðum tómötum

  • 250 g heilhveiti spaghettí
  • 1 msk. ólífuolía
  • ½ tsk. salt
  • 2 kjúklingabringur
  • 1 tsk. kjúklingakrydd
  • 1 rauð paprika
  • 10 kirsuberjatómatar
  • 10 heilar grænar ólífur
  • 1 flaska sósa úr sólþurrkuðum tómötum, basil og hvítlauk frá Felix
  • Pipar
  • Ferskt basil
  • Parmesanostur

Aðferð:

  1. Setjið vatn í pott með ólífuolíu og salti, kveikið undir og hitið að suðu.
  2. Skerið kjúklingabringurnar niður í litla bita, kryddið með kjúklingakryddi og steikið á pönnu.
  3. Skerið paprikuna smátt niður.
  4. Þegar kjúklingurinn er tilbúinn, takið hann þá af pönnunni og setjið paprikuna á pönnuna ásamt tómötum og ólífum, steikið.
  5. Setjið spaghettíið í pottinn og sjóðið samkvæmt leiðbeiningum.
  6. Setjið sósuna á pönnuna og bætið kjúklingnum aftur á pönnuna. Leyfið sósunni að malla rólega saman.
  7. Setjið 1-2 dl af pastasoðinu út í sósuna og piprið eftir smekk.
  8. Berið sósuna og spaghettíið fram saman.
Parmesan er rifinn yfir á lokametrunum.
Parmesan er rifinn yfir á lokametrunum. mbl.is/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert