Kjúklingarétturinn sem slær alltaf í gegn

mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir

Góðir kjúklingaréttir eru gulli betri og þessi réttur er sérlega vinsæll og ómissandi í allar veislur og afmæli. Hann kemur úr smiðju tengdamóður Berglindar Hreiðars á Gotteri & gersemum og segir Berglind að hann slái alltaf í gegn.

Kjúklingarétturinn hennar Ollýar

Hægt er að rífa heilan grillaðan kjúkling en einnig er sniðugt að nýta afganga af kalkún eða öðru slíku sem oft er á boðstólnum yfir hátíðarnar.

  • 1 eldaður, rifinn kjúklingur
  • ½ smátt saxaður laukur
  • 2 x Campells „Cream of Chicken“ súpur (2 x 295 g)
  • 500 ml rjómi
  • 8 msk majónes frá E. Finnsson
  • Karrý, salt og pipar
  • 200 g gular baunir
  • Rifinn ostur
  • Smjör til steikingar

Aðferð:

  1. Steikið saxaðan laukinn upp úr smjöri og karrý (um það bil 1 msk, fer eftir styrk kryddsins).
  2. Þegar laukurinn er mjúkur í gegn má hella rjómanum, súpunum og majónesinu saman við og blanda vel á meðalháum hita.
  3. Kryddið sósuna til með salti og pipar og bætið að lokum rifnum kjúklingi ásamt gulum baunum við og blandið vel.
  4. Hellið kjúklingablöndunni í eldfast mót, rífið ost yfir og hitið við 190°C í um 20-25 mínútur eða þar til osturinn fer að gyllast.
  5. Hægt er að útbúa þennan ofnrétt deginum áður, plasta og geyma í ísskáp og hita áður en veisla byrjar. Stundum höfum við reyndar líka gert þennan rétt sem kvöldverð og hitað hrísgrjón með honum og gott baguette brauð.
mbl.is