Nýverið komu fyrstu laktósafríu kryddostarnir á markað, en alls komu þrjár mismunandi gerðir í búðir. Ostarnir henta einstaklega vel í matargerð og eru algjört sælgæti ofan á kex. Hér er uppskrift að girnilegum, einföldum og fljótlegum forrétti eða smárétti.
Kex með hvítlauksosti, pekanhnetum og hunangssírópi
Í uppskriftina þarft þú:
Hunangssírópið getur þú útbúið með eftirfarandi hráefnum:
Aðferð:
Skerið ostinn niður í hæfilega bita og leggið á kexið eða niðursneitt baguette.
Saxið pekanhneturnar niður og stráið yfir ostinn.
Hrærið öllu fyrir sírópið saman og dreypið yfir allt.
Stráið rósmaríni yfir og berið fram.
Þessa girnilegu uppskrift útbjó Berglind hjá Gulur Rauður Grænn & Salt.