Nú getum við þambað Absolut eins og enginn sé morgundagurinn (eða þannig) því Absolut Vodka hefur sett á markað Absolut Juice.
Drykkurinn kemur með epla og jarðarberjabragði og inniheldur einungis 99 kalóríur. Hér er náttúrlegt brag með góðu jafnvægi í sætleikanum.
Absolut Juice þykir bestur blandaður út í sódavatn og með klaka, og hefur fengið mikið lof á samfélagsmiðlum. En drykkurinn hefur komið fólki á óvart – segja hann alls ekkert vera í líkingu við aðrar Absolut bragðtegundir.
Þessi færir okkur örugglega minni timburmenn miðað við allan þennan „hreina safa“.