Sósan sem er fullkomin með hamborgarhryggnum

Ljósmynd/María Gomez

Þessi dásamlega sósa fæddist eftir mikla tilraunastarfsemi. Hún fer alveg ofboðslega vel með kjötinu,“ segir María Gomez á Paz.is um þessa sósu sem hún fullyrðir að sé algjörlega frábær.

Upp­skrift­in kem­ur úr Hátíðablaði Hag­kaups og Mat­ar­vefs­ins sem hægt er að nálg­ast HÉR

Hér erum við ekki að tala um sinnepssósu eins og við setjum á samlokur heldur meira í ætt við bernaise-sósu en í henni eru t.d. egg og smjör hrært yfir vatnsbaði. Þessa sósu er alveg tilvalið að hafa í jólaboði með köldu kjöti.

Sósan sem er fullkomin með hamborgarhryggnum

  • ¼ bolli sykur
  • ¼ bolli nýmjólk eða rjómi
  • ¼ bolli hvítt borðedik
  • 2 msk. hunangs Dijon-sinnep
  • 1 egg
  • 25-30 g smjör
  • salt

Setjið vatn í pott og skál yfir, passið að botninn á skálinni snerti ekki vatnið.

1. Hafið yfir miðlungshita.

2. Brjótið nú eggið í skálina og setjið sykur saman við og pískið vel saman.

3. Bætið svo við rjóma/mjólk og sinnepinu og leyfið sósunni að hitna vel, hrærið reglulega í.

4. Bætið svo ediki út í og látið sjóða þar til hún er orðin þykk.

5. Ef hún nær ekki að þykkna yfir vatnsbaði er gott að setja hana beint í pott og láta hana ná suðu, þá byrjar hún fljótt að þykkna.

6. Takið hana þá af hellunni og bætið við smjöri og salti og hrærið vel. Hægt er að bera sósuna fram jafnt kalda sem heita.

Ljósmynd/María Gomez

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert