Fiskbollur með brúnni lauksósu

Hér er uppskrift sem er svo sígild og æðisleg að hjartað tekur aukakipp. Það er enginn annar er Albert Eiríksson á Albert eldar sem á heiðurinn að þessari uppskrift sem ætti að gleðja alla.

Fiskbollur með brúnni lauksósu

  • 3-400 g fiskflök
  • 1 tsk. salt
  • ½ tsk. pipar
  • 1 laukur
  • ⅓ tsk. múskat
  • ½ tsk. hvítlauksduft
  • 3 msk. hveiti
  • 2 msk. kartöflumjöl
  • 1 egg
  • 1 dl rjómi

Setjið allt í matvinnsluvél og maukið vel. Látið standa í ísskáp í nokkrar klukkustundir.
Mótið litlar fiskibollur og steikið í olíu á pönnu. Skerið niður lauk og steikið með. Stráið einni matseið af hveiti yfir, bætið við sósulit, 1/2 tsk. sykri og heitu vatni. Sjóðið í nokkrar mínútur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert