Sjáið nýjungarnar frá Le Creuset

Nýjungar frá heimsþekkta pottaframleiðandanum Le Creuset.
Nýjungar frá heimsþekkta pottaframleiðandanum Le Creuset. mbl.is/Le Creuset

Heimsþekkti pottaframleiðandinn Le Creuset kynnti á dögunum nýjungar undir japönskum áhrifum.

Við höfum séð heilu húsin, innréttingarnar, smáhluti og fatnað í mínimalískum stíl þar sem innblásturinn er sóttur í japanskan lífsstíl. Og í nýjustu vörulínu Le Creuset eru straumlínurnar í þá áttina. Við erum að sjá skálar sem henta fullkomlega undir ramen-súpu, núðlurétt eða hrísgrjón. Skálarnar eru fáanlegar í þremur stærðum og tveimur litum, Cerise og Mist Gray. Skálarnar eru eingöngu til sölu á síðu Le Creuset HÉR.

Eins er að koma ný eggjapanna á markað, sem er sérstaklega hönnuð til að matreiða japanskar eggjarúllur – tamagoyaki. Pannan er fjórum sinnum slitsterkari en aðrar sambærilegar non-stick pönnur og kemur í verslanir í apríl.

Aðrar vorlegar nýjungar eru „Calm“-vörulínan. Það eru fallegir kaffibollar sem halda kaffi eða teinu þínu heitu. Bollarnir koma í fjórum litum sem bera ansi skemmtileg heiti – Mist Gray, Shell Pink, Meringue og Sea Salt.

Skálar hannaðar undir japönskum áhrifum þar sem einfaldleikinn ræður för.
Skálar hannaðar undir japönskum áhrifum þar sem einfaldleikinn ræður för. mbl.is/Le Creuset
Ný eggjapanna er væntanleg, sérstaklega hönnuð til að matreiða japanskar …
Ný eggjapanna er væntanleg, sérstaklega hönnuð til að matreiða japanskar eggjarúllur. mbl.is/Le Creuset
Nýjir kaffibollar frá Le Creuset sem bera þau skemmtilegu heiti …
Nýjir kaffibollar frá Le Creuset sem bera þau skemmtilegu heiti „Mist Gray, Shell Pink, Meringue og Sea Salt". mbl.is/Le Creuset
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert