Fimm flottar borðstofur

Hér er haldið í náttúruna þar sem borð, stólar og …
Hér er haldið í náttúruna þar sem borð, stólar og innrétting er smíðað úr ljósum viði. Stórir gluggar hleypa svo birtunni inn. En einna flottastur er múrsteinsveggurinn með arninum. mbl.is/Derek Swalwell

Við gætum skoðað eldhús og borðstofur allan daginn ef út í það er farið því við fáum aldrei leið á fallegum rýmum þar sem við njótum okkar með mat og drykk. Hér eru fimm fagrar borðstofur.

Litríkt og lifandi! Módernískur stíll á þessari borðstofu þar sem …
Litríkt og lifandi! Módernískur stíll á þessari borðstofu þar sem hinn heimsfrægi Y-stóll skartar regnbogans litum við borðið. mbl.is/Nexus Designs
Eins látlaust og hugsast getur – en hér er unnið …
Eins látlaust og hugsast getur – en hér er unnið með grunnlitina hvítan, svartan og marmara. mbl.is/Norbert Tukaj
Hér má sjá stílhreina borðstofu með risastóru listaverki á veggnum, …
Hér má sjá stílhreina borðstofu með risastóru listaverki á veggnum, ásamt loftljósi sem stelur allri athyglinni og verður miðpunkturinn í rýminu. mbl.is/Sharyn Cairns
Hver myndi ekki vilja eiga þessa borðstofu. Þar sem himinháir …
Hver myndi ekki vilja eiga þessa borðstofu. Þar sem himinháir gluggar hleypa birtunni inn og gengið er út í garð á góðviðrisdögum. Það er líka alltaf ákveðin stemning í hringlaga borðum, og hér eru bleikir Gubi stólar sem umlykja borðið. Takið einnig eftir ljósinu – það líkist einna helst vínberjaklasa. mbl.is/Sharyn Cairns
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert