Sjúklega flott eldhús í sænskum sumarbústað

Fagurblátt Ikea eldhús í sænskum skógi.
Fagurblátt Ikea eldhús í sænskum skógi. mbl.is/Bobedre_© Birgitta Wolfgang Bjørnvad

Á Vesturströndinni í Svíþjóð er dásamlegt sumarhús að finna í villtri náttúru. Húsið er sannkölluð hönnunarperla sem teiknað er af STEG-arkitektum – og það inniheldur fagurblátt eldhús frá Ikea.

Sumarhúsið liggur í um klukkustundafjarlægð frá Gautaborg og er byggt efst á kletti þar í skógi. Og þar sem húsið sjálft er úr timbri, þá fellur það beint inn í náttúruna. En það var ósk eigendanna að húsrið yrði helst hluti af hinum trjátoppunum.  

Það er pallur sem umleikur húsið allan hringinn og útsýni nær í allar áttir. Gólfsíðir gluggar með rennihurðum eru á öllum hliðum hússins, svo auðvelt aðgengi er út á pallinn í hvaða rými sem er. Hér leikur birtan sér allan daginn og býr til fallegar skuggamyndir úr þeim húsgögnum og mannverum sem prýða húsið að innan.

Það sem stelur þó athyglinni er bláa eldhúsið í miðrýminu. Hér hefur eldhúsi frá Ikea verið komið fyrir með steyptri borðplötu sem gefur því sterkan karakter. Opnar hillur geyma diska og glös og útgengt er á pallinn úr eldhúsinu. Þetta eldhús smellpassar húsinu svo vel og gefur því ákveðna upplyftingu með sterkum lit, þar sem aðrar innréttingar eru á ljósari nótunum.

Bláa eldhúsið er frá Ikea en borðplatan er steypt. Gengið …
Bláa eldhúsið er frá Ikea en borðplatan er steypt. Gengið er beint út á pallinn í fuglasöng með morgunmatinn. mbl.is/Bobedre_© Birgitta Wolfgang Bjørnvad
Það er alls ekkert að þessu útsýni úr eldhúsinu. Sófinn, …
Það er alls ekkert að þessu útsýni úr eldhúsinu. Sófinn, Getama 290, er hannaður af Hans J. Wegner og loftljósið er frá Källermo. mbl.is/Bobedre_© Birgitta Wolfgang Bjørnvad
Baðherbergið er látlaust eins og annað í húsinu – með …
Baðherbergið er látlaust eins og annað í húsinu – með náttúruna beint fyrir framan sturtuna. Guli spegillinn er frá Ikea. mbl.is/Bobedre_© Birgitta Wolfgang Bjørnvad
Fallegt sumarhús innan um villta náttúru í Svíþjóð.
Fallegt sumarhús innan um villta náttúru í Svíþjóð. mbl.is/Bobedre_© Birgitta Wolfgang Bjørnvad
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert