Reyndi að panta morð á veitingastað í Vestmannaeyjum

Veitingastaðurinn GOTT í Vestmannaeyjum býður upp á ýmislegt en þó …
Veitingastaðurinn GOTT í Vestmannaeyjum býður upp á ýmislegt en þó ekki morð.

Það gerist ýmislegt í veitingageiranum og veitingafólk ýmsu vant en þetta er ábyggilega með því betra. Berglind Sigmarsdóttir á GOTT í Vestmannaeyjum fékk fyrirspurn um daginn þar sem spurt var hvort hægt væri að panta morð á laugardaginn.

Berglind svaraði því til að það gæti verði erfitt og svaraði viðkomandi skellihlægjandi um hæl að hér hefði svokallað „auto-correct" verið að verki en ætlunin hafi að sjálfsögðu verið að panta borð.

Berglind Sigmarsdóttir.
Berglind Sigmarsdóttir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert