Ofnbakaður kjúklingaréttur í löðrandi ostasósu

Ljósmynd/Valgerður Guðmundsdóttir

Þessi kjúklingaréttur er sagður fullkominn við flest tilefni enda fljótlegur, einfaldur en merkilega góður. Það er hún Valgerður Guðmundsdóttir eða Valla á GRGS.is sem á heiðurinn að uppskriftinni.

Valla segir að það geri mjög mikið fyrir réttinn að nota rifna ostinn með pipar frá Örnu ofan á. Bragðið verði alveg sérstaklega gott þegar piparinn bætist við. Svo sé hægt að flýta fyrir sér og nota pönnu sem þolir að fara í ofn en einnig má nota millistærð af eldföstu móti.

Ofnbakað kjúklinga tortellini með spínati og piparosta mozzarella

  • 250g fyllt tortellini soðið samkvæmt leiðbeiningum
  • 1 msk. olía
  • 400g kjúklingalundir eða bringur skornar í bita
  • 100g ferskir sveppir í sneiðum
  • 100g ferskt spínat
  • kjúklingakrydd eftir smekk
  • 150g rifinn ostur með pipar frá Örnu

Piparosta sósan

  • 1 Kryddostur með pipar frá Örnu
  • 1 ½ dl vatn
  • 2 dl rjómi frá Örnu
  • 1 kjúklingateningur
  • 50 g Rifinn ostur með pipar frá Örnu

Rífið kryddostinn á rifjárni og bræðið rólega með vatninu og kjúklingatening. Bætið rjómanum og mozzarella saman við og látið malla á vægum hita.

Þetta er fullkominn gúrm pastaréttur sem gaman er að bjóða í miðri viku en sómir sér einnig vel í matarboði. Hann er ótrúlega fljótlegur og einfaldur og inniheldur ekki mörg hráefni. Ég nota kjúklingalundir með pastanu en einnig mætti nota kjúklingabringur. Það gerir mjög mikið fyrir réttinn að nota rifna ostinn með pipar frá Örnu...

Leiðbeiningar

1. Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum en fullsjóðið ekki alveg

2. Skerið kjúklinginn í bita og steikið hann uppúr olíunni og kryddið með kjúklingakryddi.

3. Bætið sveppum og spínati saman við og brúnið með kjúklingnum.

4. Setjið sósuna út á pönnuna og slökkvið. Ef pannan má fara í ofn getið þið sett ostinn núna yfir og beint í ofn en ef ekki þarf innihald pönnunnar að fara í eldfast mót og mozzarellaosturinn fer þá þar yfir.

5. Bakið í ofni í 15 mín. Gott er að klára síðustu mínúturnar með grillið í gangi.

Ljósmynd/Valgerður Guðmundsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert