Eldaði steik í brauðrist og setti TikTok á hliðina

Myndin tengist fréttinni ekkert.
Myndin tengist fréttinni ekkert. mbl.is/TheKitch

Tiktoknotandinn Juliette hefur heldur betur fundið sig inni á TikTok. Hún hefur einungis birt 11 myndbönd en er samt komin með rétt tæplega 100 þúsund fylgjendur.

Sérgrein hennar er að elda með heimilistækjum en hún hefur prufað að steikja hamborgara á staujárni, elda pylsur í þurrkara, sjóða kjötbollur í kaffivél og steikja beikon og poppa með sléttujárni.

Vitleysan hefur væntanlega kostað hana fúlgur fjár þar sem leiða má líkur að því að heimilistækin séu væntanlega öll ónýt og hárið á henni lykti eins og beikon – og fötin eins og pylsur – sem mörgum þykir reyndar eftirsóknarvert.

En nýjasta uppátæki Juliette er að elda steik í brauðrist og samkvæmt myndbandinu virkar það en hvað haldið þið?

Nú þegar hefur verið horft á myndbandið yfir sex milljón sinnum þannig að spurt er hvort þetta sé næsta æði!

Juliette gæðir sér á steikinni.
Juliette gæðir sér á steikinni.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert